Skilmálar

Með því að panta kakó hjá kako.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Verð og greiðslur

Verð á vörum hjá kako.is er staðgreiðsluverð með 11% virðisaukaskatti fyrir kakó og 24% virðisaukaskatti fyrir reykelsi. 

Hægt er að greiða með kreditkorti eða debetkorti.

Þegar borgað er með greiðslukorti fer greiðslan í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor og fær kako.is engar kortaupplýsingar viðskiptavina.

Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur. Kako.is áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni.

kako.is áskilur sér þann rétt að breyta verði á vörum fyrirvaralaust.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Ef pantað er fyrir 15.000 krónur og meira er frí sending með Dropp. Fyrir pantanir undir 15.000 krónur kostar 550 krónur að senda með Dropp á höfuðborgarsvæðinu og 800 krónur utan höfuðborgarsvæðisins. Heimsendingarkostnaður er 1200 krónur á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu. 

Afhending vöru

Þegar greiðsla hefur borist eru pantanir sendar samkvæmt því sem kaupandi hefur valið. 

Gætið að því að heimili séu rétt merkt og þegar pöntun er gerð að hafa nafn og heimilisfang eins ítarlegt og kostur er. 

Vöruskil

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef kaupandi velur að senda vöru sem hann vill skila, greiðir hann sjálfur sendingargjaldið til kako.is. 

Gölluð vara

Ef vara er með augljósan galla er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir kako.is allan sendingarkostnað sem um ræðir.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Kako.is heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál hans vegna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hafa samband: kamilla@kako.is