Dalileo kakó - 20 bollar (400 gr)
Dalileo kakó - 20 bollar (400 gr)
Dalileo kakó - 20 bollar (400 gr)

Dalileo kakó - 20 bollar (400 gr)

Regular price 7.400 kr Sale

Poki með tuttugu bollum (400 grömm) af niðurskornu "single origin"100% hreinu kakó frá Gvatemala sem er sannkölluð ofurfæða. Þetta kakó kemur frá Dalileo Chocolat í Polochic dalnum í norðurhluta landsins þar sem notast er við umhverfisvænar ræktunaraðferðir, með tilliti til orkusparnaðar, sjálfbærni og skógræktar.

Kakóið er svokallað “ceremonial grade cacao". Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur phenylethylamine (PEA), efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical", er endorfín sem mannslíkaminn framleiðir og hefur aðeins fundist í einni plöntu – Cacao Theobroma. Kakó inniheldur króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur og tryptophan svo eitthvað sé nefnt af þeim góðu efnum sem kakóið hefur að geyma. 

Fjölmargar rannsóknir sem gerðar hafa verið, meðal annars við Yale og Oxford, staðfesta virkni kakóbaunarinnar og stöðu hennar sem heilsusamleg og heilsueflandi fæða.

Kynntu þér töfra kakósins. Pantanir í vefverslun er hægt að sækja á Dropp staði víðsvegar um landið og fá heimsent. Kynntu þér sendingarleiðarnar hér. Ef þú pantar fyrir meira en 15.000 krónur færðu sent frítt með Dropp. Einnig er hægt að kaupa kakó í Heilsuhúsinu,  EKOhúsinu í Síðumúla 11Ljósheimum í Borgartúni 3 og ilmandi kakóbolla að hætti systra í Systrasamlaginu, Óðinsgötu 1. Heilsaðu upp á hjartað þitt.

Dagleg notkun: Tilvalið að útbúa heitan kakóbolla, skella kakói í hristinginn, út á grautinn eða til dæmis í hnetumixið. Hér má sjá leiðir til að útbúa kakóbolla. 

Framleiðsluferli: Kakóbaunirnar eru gerjaðar í sedrusviðarkössum og sólþurrkaðar eftir gerjun. Þær eru síðan léttristaðar, skurnin tekin af þeim og kakóið malað í massa sem harðnar. Kakómassinn viðheldur náttúrulegu fitumagni og mjúk vinnslan varðveitir mikilvæg næringarefni sem annars tapast eftir því sem kakóbaunin er meira unnin.